Air Iceland Connect    
Logged in as Travel Agent
    • English  
    • Dansk  
    • Íslenska  
  • Áfangastaðir
  • Pakkaferðir
  • Upplýsingar
  • Komur og Brottfarir
  • Flugfrelsi
  • Bílaleiga
close
  • Upplýsingar
  • Þjónusta
  • Ferðaleiðbeiningar
  • Farangur
  • Um Air Iceland Connect
  • Séraðstoð
  • Fargjaldategundir
  • Vildarpunktar
    • Punktar og peningar
    • Skrá Vildarpunkta
  • Mannauður

Punktar og peningar: Skilmálar

Almennt um Punkta og peninga
Punktar og peningar gerir Saga Club félögum kleift að nýta sér Vildarpunkta sem greiðslu fyrir almenn fargjöld sem bókanleg eru á vef Air Iceland Connect. Félagar geta greitt fyrir fargjald, eldsneyti, skatta og önnur ófrávíkjanleg gjöld til allra áfangastaða Air Iceland Connect, ýmist að fullu eða að hluta með því að blanda saman Vildarpunktum og annarri greiðsluleið.

Air Iceland Connect áskilur sér rétt til að undanskilja ákveðin flug, farrými og áfangastaði frá greiðsluleiðinni.

Lágmarksfjöldi Vildarpunkta sem hægt er að nota upp í bókun er breytilegur eftir gjaldmiðlum. Ekkert hámark er á fjölda Vildarpunkta sem hægt er að nota fyrir þá þjónustuþætti sem greiðanlegir eru með Vildarpunktum. Verðgildi þeirra Vildarpunkta sem félagi kýs að nota upp í bókun getur verið breytilegt. Vildarpunktaupphæð sem birtist í bókunarvél er aðeins gild á þeim tímapunkti sem bókun á sér stað.

Fjöldi Vildarpunkta sem birtir eru við bókun er áætlaður og getur breyst við útgáfu bókunar þegar endanleg upphæð er reiknuð. Fjöldi Vildarpunkta sem teknir verða út verður þó aldrei meiri en sá fjöldi Vildarpunkta sem félagi valdi að nota og mun ekki hafa áhrif á upphæð sem tekin er af kreditkorti.

Aðrar þjónustur
Hægt er að kaupa viðbótarþjónustur og aðrar hliðarvörur þegar Vildarpunktar eru notaðir sem greiðsluleið, líkt og aukna farangursheimild, sæti, breytingu á farseðli o.fl.

Miðabreytingar
Bókunum sem greiddar hafa verið með Punktum og peningum, að hluta eða að fullu, er hægt að breyta í samræmi við viðeigandi fargjaldaskilmála. Allar greiðslur sem tengjast breytingu á bókunum t.d. fargjaldamunur, skattar og gjöld, er ekki hægt að borga með Vildarpunktum, en hægt er að nota aðrar greiðsluleiðir.

Afbókanir og endurgreiðslur
Þar sem Punktar og peningar er greiðsluleið fyrir almenn fargjöld gilda sömu fargjaldaskilmálar um endurgreiðslur og á almennum farseðlum.

Þegar bókun sem greidd var með Punktum og peningum er afbókuð eru endurgreiðslur með eftirfarandi hætti:

Ef hluti fargjalds er endurgreiðsluhæfur, getur endurgreiðslan bæði verið í formi Vildarpunkta og/eða peninga. Skiptingin er breytileg eftir samsetningu bókunar. Aldrei eru endurgreiddir fleiri punktar en notaðir eru í upphafi.

Ef fargjaldið er að fullu endurgreiðsluhæft eru greiðslur endurgreiddar í sömu hlutföllum og bókunin var upphaflega greidd í.

 

  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube
  • Instagram

© Air Iceland Connect - Reykjavíkurflugvöllur - 102 Reykjavík | Sími: 570 3000 | Þjónustuver: 570 3030 | Hafðu samband
kt. 530575-0209 | VSK-númer 00621

  • image

Powered by

image